Hamingjubók eftir Bjargeyju Ingólfsdóttur er þín eigin dagbók með fróðleik um hamingju, sjálfsumhyggju og heilsu.
Þú skráir dagsetningu þegar þú skrifar svo það er engin regla eða tímapressa hvenær eða hversu oft þú skrifar í bókina.
Þú getur notað Hamingjubók til þess að finna það út hvað eykur vellíðan þína og hamingju í lífinu. Bókin nýtist öllum sem vilja hugsa vel um líkama og sál. Með því að skrifa í bókina getur þú fundið út hvar styrkleikar þínir liggja, hverjir draumar þínir eru og hvert þú stefnir í lífinu.
Þú getur skrifað niður daglega hvernig þér líður, hvaða tilfinningar þú upplifir og hver verkefni dagsins eru.
Einnig getur þú skráð næringu, hreyfingu, sjálfsumhyggju og svefn og þannig getur þú áttað þig betur á því hvað er í góðu jafnvægi og hvort það séu einhverjar breytingar sem þú vilt gera á þínum lífsstíl.
Í upphafi hverrar viku getur þú skráð markmið þín, þínar hugleiðingar og að hvaða skapandi verkefnum þú ert að vinna. Í lok hverrar viku getur þú síðan farið yfir það hvaða markmiðum þú náðir og hvort þú viljir setja þér markmið fyrir nýja viku.